Starf skólaliða felst m.a í aðstoð við nemendur í leik- og grunnskóla, gæslu og þrifum á skólahúsnæði.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Áhugi og reynsla á að vinna með börnum og reynsla við ræstingarstörf er kostur. Hreint sakavottorð er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október 2018
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488-2202.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í afgreiðslu bæjarskrifstofa og á vestmannaeyjar.is. Umsóknum ber að skila í afgreiðslu bæjarskrifstofa eða á rafrænu formi á netfangið annaros@grv.is