Hægt er að nálgast mál sem eru í kynningarferli inn á Skipulagsgáttinni. Skipulagsgáttin er samráðsgátt um skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum og framkvæmdaleyfi. Þú getur nálgast upplýsingar um mál í vinnslu, gert athugasemdir við mál á kynningartíma og nálgast endanleg gögn og afgreiðslur þar inni.
Óskir þú eftir frekari upplýsingum um skipulagsmál í Vestmannaeyjum sem eru í kynningu getur þú sent póst á umhverfissvid@vestmannaeyjar.is.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hlutverk skipulags- og umhverfisfulltrúa er að veita íbúum Vestmannaeyjabæjar, kjörnum fulltrúum og öllum þeim sem koma að hönnun og byggingu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulagsmál.
Skrifstofa Skipulags- og umhverfisfulltrúa er í Ráðhúsi Vestmannaeyja
Sími 488-2000
Opnunartími er:
Mán-fim 09-15
Fös 9-13
Bóka þarf viðtalstíma í síma 488-2000 eða í tölvupósti umhverfissvid@vestmannaeyjar.is
Skipulags- og umhverfisfulltrúi er Dagný Hauksdóttir.
Spurt og svarað um skipulagsmál
- Byrjaðu á því að skrá þig inn á íbúagátt Vestmannaeyjabæjar með rafrænum skilríkjum
- Smelltu á “Umsóknir”
- Smelltu á “Umhverfis- og framkvæmdasvið”
- Smelltu á þá fyrirspurn eða umsókn sem við á
- Fylltu út skjalið og hengdu við viðeigandi fylgiskjöl
- Smelltu á „senda umsókn“
- Öll sem áhuga hafa á skipulagi í Vestmannaeyjum geta sent inn fyrirspurnir til embættis skipulagsfulltrúa.
- Húseigendur og lóðarhafar, eða ráðgjafi fyrir þeirra hönd, geta sótt um að gera breytingu á aðalskipulagi, nýtt deiliskipulag og/eða gera breytingu á gildandi deiliskipulagi.
- Þær geta varðað starfsemi og notkun. Fjallað er um landnotkun í aðalskipulagi eins og hvort um sé að ræða íbúðarbyggð, opin svæði eða mismunandi atvinnusvæði. Misjafnt er hvort fjallað um starfsemi í deiliskipulagi en þá er oft nákvæmari lýsing á starfsemi í tilteknu húsnæði.
- Nýtt eða breyting á deiliskipulagi einstakra svæða.
- Breyting á aðalskipulagi.
- Aukið byggingarmagn, hækkun húsa eða breyting á lóð.
- Breyting og staðsetning á einstaka starfsemi.
- Niðurrif bygginga og annarra mannvirkja.
- Breytingar á húsnæði til dæmis hvað varðar svalir, kvisti, sólstofur o.s.frv.
- Breyting á fjölda eða fyrirkomulagi bílastæða.
- Breytingar á sorpi.
Að breyta deiliskipulagi tekur minnst 3 mánuði. Deiliskipulagstillögu þarf að skila inn til Skipulagsfulltrúa. Tillagan fer fyrir umhverfis- og skipulagsráð sem tekur ákvöruðun um hvort deiliskipulagsbreytingin verði auglýst eða grenndarkynnt, ef vilji er fyrir breytingunni. Umhverfis- og skipulagsráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til samþykktar eða synjunar. Deiliskipulagið er sent til Skipulagsstofnunar til yfirferðar sem veitir heimild til að birta auglýsingu um gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda.
Grenndarkynning felst í því að nágrönnum, sem hagsmuna eiga að gæta, er kynnt málið/breytingar og gefinn kostur á að tjá sig innan ákveðins frests sem skal vera a.m.k. fjórar vikur. Að þeim fresti liðnum tekur umhverfis- og skipulagsráð málið til afgreiðslu.
Framkvæmdaleyfi er leyfi sveitarstjórnar til meiriháttar framkvæmda sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breytingar lands með jarðvegi eða efnistöku sem og annarra framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmdaleyfi er aðeins gefið út ef það er í samræmi við skipulag. Unnt er að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli aðalskipulags án deiliskipulagsgerðar eða grenndarkynningar, ef gerð er grein fyrir framkvæmdinni og fjallað ítarlega um hana í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Að öðrum kosti kallar veiting framkvæmdaleyfis á að jafnframt liggi fyrir deiliskipulag af viðkomandi svæði. Gildistími framkvæmdaleyfa er 12 mánuðir frá samþykki sveitarstjórnar.
Inn á kortasjá Vestmannaeyjabæjar undir flipanum “Skipulag”. Einnig er hægt að finna gildandi skipulög inn á skipulagsvefsjá hjá Skipulagsstofnun.