Fara í efni

Sundlaug

Opnunartími:
Alla virka daga 06:30 - 21:00
Helgar: 09:00 - 18:00

Sundlaug Vestmannaeyja er með góðri innisundlaug ásamt útisvæði sem þykir eitt það glæsilegasta á landinu.

  • Virkir dagar:  06:30 – 21:00
  • Helgar:  09:00 – 18:00

Skírdagur - síðasti fimmtudagur fyrir páska: 09:00 - 17:00
Föstudagurinn langi: 11:00 - 14:00
Páskadagur: 11:00 - 14:00
Annar í páskum: 09:00 - 17:00
Sumardagurinn fyrsti - fyrsti fimmtudagur eftir 18. apríl: 09:00 - 17:00
Alþjóðlegur frídagur verkafólks - 1. maí: 09:00 - 17:00
Uppstigningardagur: 09:00 - 17:00
Hvítasunnudagur: 09:00 - 17:00
Annar í hvítasunnu: 09:00 - 17:00
Þjóðhátíðardagur Íslendinga - 17. júní: 09:00 - 18:00
Þjóðhátíð (fös-sun): 10:00 - 17:00
Frídagur verslunarmanna - fyrsti mánudagur í ágúst: 10:00 - 17:00
Aðfangadagur: 08:00 - 11:00
Jóladagur: LOKAÐ
Annar í jólum: 10:00 - 15:00
Gamlársdagur: 08:00 - 11:00
Nýársdagur - LOKAÐ

  • Börn yngri en 10 ára (miðað við 1. júní árið sem þau verða 10 ára) skulu vera í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Mest mega vera tvö börn í fylgd hvers, nema um sé að ræða foreldri eða forsjáraðila. 
  • Börn eru á ábyrgð foreldra/forsjáraðila í sundlauginni og skulu þeir fylgjast vel með börnum sínum í beinni sjónlínu.
  • Sundlaugargestum er skylt að þvo sér vel án sundfata áður en farið er í laugina. Þá skulu sundlaugagestir klæðast viðurkenndum og hreinum sundfatnaði. 
  • Dýfingar eru einungis leyfðar á þar til gerðum rás- og/eða stökkpöllum.
  • Ósyndir skulu nota viðurkennda armkúta eða sundvesti. Athugið að hringlaga plastkútar eru leikföng en ekki öryggistæki.
  • Öll notkun tóbaks, rafretta, nikótínpúða og sambærilegra vara, ásamt neyslu áfengis og annarra vímuefna er bönnuð í sundlaugum (öllu mannvirki). Fólki undir áhrifum er óheimill aðgangur.
  • Hópar barna (frístundaheimili, skólahópar, skátar, sumarnámskeið o.þ.h.) skulu vera sérstaklega auðkenndir. 
  • Notkun köfunartækja s.s. öndunarpípu og köfunargrímu sem nær yfir öndunarfæri er óheimil nema með sérstöku leyfi. Tæki skal vera vottað.
  • Sundlaugagestir skulu ávallt fylgja fyrirmælum starfsfólks. 
  • Ávallt ber að sýna starfsfólki og öðrum gestum tillitssemi.
  • Sundlaugagestum ber að haga sér með þeim hætti að ekki skapist sérstök hætta af háttsemi þeirra, hvorki gagnvart þeim sjálfum, starfsfólki eða öðrum sundlaugagestum. 
  • Sundlaugargestum er með öllu óheimilt að sýna af sér ógnandi og/eða ofbeldisfulla hegðun og/eða tjáningu gagnvart starfsfólki eða öðrum sundlaugargestum. 
  • Notkun myndavéla, síma og annarra snjalltækja er stranglega bönnuð í búningsklefum og á laugarsvæði.
  • Börn komin á grunnskólaaldur (miðað við 1. júní árið sem þau verða 6 ára) skulu nota búningaaðstöðu ætluð þeirra kyni. Henti ekki börnum að fara í búningsklefa karla eða kvenna eru sérklefar í boði.
  • Glerílát eru óheimil á laugarsvæði og í búningsklefum. 
  • Sundlaugagestir eru á eigin ábyrgð á sundstað. 
  • Sundlaugagestum ber að sýna aukna aðgát ef aðstæður gefa tilefni til slíks, t.d. ef varúðarmerkingar eru uppi eða sérstök slysahætta skapast vegna veðurfars. 
  • Sundstaðir bera ekki ábyrgð á skóm eða öðrum eigum sundgesta. Sundlaugagestum er bent á að nota læsta skápa.
  • Sé óskilamuna ekki vitjað innan 90 daga er áskilinn réttur til að gefa og/eða farga þeim. 
  • Ef brot sundlaugargests er minniháttar gagnvart öryggis- og/eða umgengnisreglum skal starfsmaður sundlaugar koma tilmælum á framfæri við sundlaugargest og veita þannig færi á úrbótum. 
  • Sé brot metið alvarlegt og/eða ítrekað er starfsfólki heimilt að vísa sundlaugargesti fyrirvaralaust frá sundstað. Sama gildir ef sundlaugargestur neitar að verða við tilmælum starfsmanns sundlaugar um að láta af háttsemi sem er í berhögg við umgengnisreglur. 
  • Í alvarlegustu tilvikum kann jafnframt að vera skylt að tilkynna brot til lögreglu. 
  • 1. júní árið sem börn verða 10 ára geta þau farið í sund án fylgdarmanns (að loknum 4. bekk).
  • Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sundstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri.
  • Mest mega vera tvö börn í fylgd hvers nema um sé að ræða foreldri/forsjáraðila (sbr. reglugerð um sund- og baðstaði 1. kafla 14.gr).
  • Börn eru alltaf á ábyrgð foreldra/forsjáraðila. Ósynd börn skulu vera með armkúta/sundvesti.
  • Miðað er við að börn fari í klefa merkta sínu kyni þann 1. júní það ár sem barnið byrjar í grunnskóla (verður 6 ára). Henti ekki börnum að fara í búningsklefa karla eða kvenna eru sérklefar í boði.
  • Hægt er að óska eftir að starfsmaður fari með barni í gegnum klefann.
  • Við fyllum ekki sérstaklega út heilsu- og öryggisform fyrir skólahópa.
  • Sundlaug Vestmannaeyja fylgir reglugerðinni um sundstaði sem sundlaugum ber að fylgja á Íslandi. Hægt er að kynna sér reglugerðina frekar hér en athugið að hún er á íslensku og ekki til á öðrum tungumálum sem stendur.