Vestmannaeyjabær og Lista- og menningarfélagið efla samstarf um menningarviðburði
Þann 30. maí sl. var samstarfssamningur milli Vestmannaeyjabæjar og Lista- og menningarfélags Vestmannaeyja undirritaður í þeim tilgangi að efla samstarf milli þessara aðila, m.a. í tengslum við menningarviðburði á vegum sveitarfélagsins, s.s. Goslokahátið og Safnahelgi.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri undirritaði samninginn fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar og þær Matthildur Sveinsdóttir og Laufey K. Guðjónsdóttir fyrir hönd Lista- og menningarfélagsins.