17. apríl 2025

Úthlutun svæða til götu- og torgsölu

Það vorar í lofti og undirbúningur sumarsins er að hefjast. Vestmannaeyjabær auglýsir laus til umsóknar svæði fyrir götu- og torgsölu.

Svæðin sem um ræðir eru á Skipasandi og á Vigtartorgi og er úthlutað í samræmi við drög að uppfærðum reglum Vestmannaeyjabæjar um götu- og torgsölu.

Reglur umgötu- og torgsölu – drög að uppfærðum reglum

Hægt er að sækja um stöðuleyfi fyrir söluvagn eða söluskúr fyrir allt sumarið (maí-september), fyrir mánuð eða fyrir viku.

Í umsókn skal koma fram sá tími sem sótt er um, fyrirhuguð starfsemi, stærð og mynd af sölubás eða vagni og orkunotkun.

Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2025. Umsóknir skulu berast með skriflegum hætti á netfangið: umhverfissvid@vestmannaeyjar.is eða í afgreiðslu í Ráðhús Vestmannaeyja. 


Jafnlaunavottun Learncove