23. júní 2020

Tökur á kvikmyndinni Wolka í Vestmannaeyjum

Kæru íbúar í Vestmannaeyjum

Í ágúst er áætlað að kvikmyndagerðarfólk á vegum Sagafilm og Film Produkcja hefji tökur á pólsk/íslensku spennukvikmyndinni Wolka í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar.

Wolka fjallar um konu sem losnar úr fangelsi í Póllandi á reynslulausn og ferðast til Íslands, sest að í Vestmannaeyjum og gerir sitt besta til að aðlagast pólska og íslenska samfélaginu í Eyjum. Helstu leikarar eru Olga Bołądź, Eryk Lubos, Bartek Topa, Anna Moskal og Guðmundur Þorvaldsson.

 

Það er mikilvægt fyrir okkur hjá Sagafilm að eiga í góðu samstarfi við ykkur íbúana og er okkur jafnframt mikilvægt að þið verðið fyrir sem minnstum óþægindum vegna starfs okkar á svæðinu. Það fylgir svona tökum gjarnan umstang eins og gefur að skilja, en við munum að sjálfsögðu reyna að halda því í lágmarki eins og kostur er. Ef eitthvað kemur upp, þá vinsamlegast hafið samband við okkur og við munum reyna að bregðast við á sem bestan hátt.

Með vinsemd, virðingu og von um gott samstarf.

 

Sagafilm

https://www.sagafilm.is/

Film Produkcja
https://filmprodukcja.com/

Olga Bołądź https://www.imdb.com/name/nm2848201/

Eryk Lubos
https://www.imdb.com/name/nm1455087

Bartek Topa

https://www.imdb.com/name/nm0867603

Anna Moskal

https://m.imdb.com/name/nm3185584

Guðmundi Þorvaldsson

https://www.imdb.com/name/nm0960389

Frekari upplýsingar veitir:

Beggi Jónsson – framleiðandi beggi@sagafilm.is – sími
Árni Þórður Randversson – markaðsstjóri Sagafilm arnirandvers@sagafilm.is