7. ágúst 2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn Vestmannaeyja

Aðgerðastjórn í Vestmannaeyjum hefur verið virkjuð.  

 

Einstaklingar sem voru gestkomandi í Vestmannaeyjum sl. helgi hafa greinst með staðfest smit af COVID-19. Smitrakningarteymi almannavarna rekur nú ferðir þeirra. 48 einstaklingar sem eru búsettir í Vestmannaeyjum eru þegar komnir í sóttkví og er von á að þeim fjölgi þegar líða tekur á daginn. Enginn er í einangrun í Vestmannaeyjum.

Aðgerðastjórn ítrekar mikilvægi þess að bæjarbúar gæti að eigin smitvörnum og fari að fyrirmælum stjórnvalda til hefta útbreiðslu veirunnar í samfélaginu.

Við erum öll almannavarnir.

Aðgerðastjórn Vestmannaeyja.

 

5eb42aca2d5b8f66436ab307_Samfelagssattmali-A4_1596795329378