Þróunarverkefni Kirkjugerðis á lista yfir top 20 bestu verkefnin
Á ráðstefnunni UTÍS var fjallað um þróunarverkni ,,ferðalag um íslenkst skólakerfi"
Utís er árleg ráðstefna um nýsköpun og stefnumörkun í íslensku skólastarfi, einkum í sambandi við upplýsingatækni, og er ætlað kennurum, skólastjórnendum og öðru starfsfólki á öllum skólastigum. Hún er skipulögð af Ingva Hrannari Ómarssyni og er haldin annaðhvert ár á Sauðárkróki og annaðhvert á netinu.
Þessi umfjöllun um þróunarverkefni heitir ferðalag um íslenskt skólakerfi. Það voru rúmlega 70 verkefni tilnefnd og að mati dómnefndar var þróunarverkefni Kirkjugerðis um floorbooks í topp 20.