14. febrúar 2025

Það er gott að búa í Vestmannaeyjum

Samkvæmt árlegri þjónustukönnun Gallup ríkir almenn ánægja meðal íbúa í Vestmannaeyjum með þjónustu bæjarins og er hann í 1-2. sæti þegar kemur að ánægju með stað til að búa á.

Af þeim 13 þjónustuþáttum sem mældir eru er Vestmannaeyjabær yfir landsmeðaltali í 12 þeirra og við landsmeðaltal í 1 í samanburði við 19 stærstu sveitarfélög á landinu. Ánægja með sorphirðu sveitarfélagsins hefur aukist og er það sá þjónustþáttur sem er við landsmeðaltal.

Veruleg ánægja er með þjónustu Vestmannaeyjabæjar við barnafjölskyldur en sveitarfélagið er í 1. sæti fimmta árið í röð. Þá er mikil ánægja með þjónustu við eldri borgara en þar er sveitarfélagið einnig í 1. sæti. Þegar ánægja með þjónustu við fatlað fólk er mæld er sveitarfélagið í 1.-2. sæti og þá á er bærinn í 2. sæti er varðar ánægju með menningarmál.

Bæjarráð fór yfir könnunina á fundi sínum í vikunni og lýsti yfir ánægju með niðurstöðurnar enda, líkt og undanfarin ár, kemur Vestmannaeyjabær heilt yfir afar vel út úr könnuninni.

Ekki verður farið yfir niðurstöður könnunarinnar á sérstökum íbúafundi að þessu sinni þar sem íbúafundur um listaverk Ólafs Elíassonar verður síðar í mánuðinum. Niðurstöðurnar eru aðgengilegar ( hér )

Ábendingar um niðurstöður þjónustukönnunarinnar og það sem má betur fara er hægt að senda á netfangið thjonustukonnun@vestmannaeyjar.is


Jafnlaunavottun Learncove