Textíll!
Öllum textíll úrgang og skóm á að skila í sérsöfnun textíls, jafnvel þó hann sé ónothæfur (nema mjög óhreinn).
Textíll er mjög mengandi í framleiðslu t.d. vengna vatnsnotkunar, klórs og litarefna. Á þessu ári er gert ráð fyrir að 25.000 tonn af textíl muni vera skilað sem úrgang, jafnvel fatnaður sem hefur aldrei verið notaður. Aðeins brot öðlast framhaldslíf sem fatnaður.
Grenndarstöðvar og móttökustöð
Grenndarstöðvum er ætla að gera skil á textíl aðgengileg og eru þær einunis ætlaðar fyrir minna magn, t.d. sem nemur einum haldapoka. Ef um mikið magn er að ræða skal textíl skilað á móttökustöð úrgangsefna við Eldfellsveg.
Textíl skal skila í glærum poka
Því miður berst óæskilegur úrgangur í textíl söfnun. Því er mikilvægt fyrir meðhöndlun í næsta skrefi að sjá innihald pokanna.
Kaupum minna og lengjum líftímann
Textíll fer ýmist endurnotaður sem fatnaður, endurunninn í upphaflegt hráefni (t.d. bómull verður nýr bómull), endurunninn í hráefni með minna virði (t.d. tuskur) eða nýttur í orku-endurvinnslu (brennslu). Aðeins lítill hluti af þeim fatnaði sem berst í söfnun textíls á sér framhaldslíf sem fatnaður. Því er besta lausnin að lengja líftíma textíls með því að selja, gefa, laga, eða finna önnur not.
Göngum vel um og munum að festa krækjuna sem heldur loki gámsins niðri!