8. júlí 2020

- Takk fyrir að vera til fyrimyndar -

Komdu og taktu mynd af þér og þínumvið Takk vegginn sem staðsettur er hjá HS veitum og deildu á samfélagsmiðlum.

Fyrir 40 árum stigum við Íslendingar framfaraskref á heimsmælikvarða og vorum til fyrirmyndar með því að vera fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Á þessum tímamótum er verðugt að staldra við, huga að því sem vel er gert og þakka þeim sem við teljum vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt.Markmiðið er að landsmenn skrifi kveðju til þeirra sem þeir telja vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt.
Vestmannaeyjabær hvetur alla íbúa og aðra sem leið eiga hjá að taka myndir af sér og sínum og deila á samfélagsmiðlum undir merkjunum @tilfyrirmyndar og #tilfyrirmyndar