21. ágúst 2025

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

Tillaga að Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum 2025-2036, kynning og samráð

Vestmannaeyjabær vinnur að gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum. Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, liggur nú fyrir og gefst almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum sínum á framfæri áður en áætlunin verður afgreidd af bæjarstjórn Vestmannaeyja.

Hægt er að kynna sér tillöguna á hér og á vefsíðu Environice, en Environice hefur aðstoðað við áætlunargerðina.

Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi mánudaginn 6. október 2025 á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í pósti á heimilisfangið:
Vestmannaeyjabær v/ Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum
Kirkjuvegi 50
900 Vestmannaeyjum


Jafnlaunavottun Learncove