1. júlí 2021

Stuttmyndanámskeið fyrir 10-14 ára - nokkur sæti laus

Boðið er upp á námskeið í stuttmyndagerð sem sett hefur verið saman fyrir börn og unglinga á aldrinum 10 - 14 ára. Þátttakendur fá að kynna sér allar hliðar stuttmyndagerðar frá hugmyndavinnu og handritsgerð til upptöku og eftirvinnslu efnis. Þátttakendur skipta með sér verkum við gerð myndanna. Í lokin er frumsýning og þátttakendur fá afhent viðurkenningarskjal.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið.

Staðsetning námskeiðs: Tölvustofan í Barnaskólanum

Dagsetning: 5. júlí til 9. júlí.

Tími: 09:00 til 13:00

Verð: 2500 kr.

Hægt er að skrá sig með því að senda póst á ernag@vestmannaeyjar.is

Um leiðbeinendur

Þórður Pálsson er menntaður kvikmyndaleikstjóri með MA frá National Film & Television School á Englandi. Hann gerði nýverið þættina Brot/Valhalla Murders sem voru sýndir á RÚV og Netflix. Álfrún Laufeyjardóttir hefur starfað innan flest allra deilda kvikmyndagerðar og hefur m.a. leikið í Lof mér að falla, Mannasiðir og Vikings: Valhalla, sem verður sýnd á Netflix.

Stuttmyndanamskeid-2021-002-


Jafnlaunavottun Learncove