21. júlí 2020

Stuðningsfulltrúi óskast í frístundaverið Hamarsskóla

Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 37,5 – 50% stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum. Frá 13:00-16:00/16:30 

Frístund er starfrækt eftir hádegi alla virka skóladaga frá því að skóla lýkur og til 16:30. Einnig er opið á Frístund flesta daga þegar skólinn er lokaður frá 07:45-16:30.

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun miðast við tímavinnu og eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey

Helstu verkefni

· Stuðningur við nemenda við daglegar athafnir í leik og starfi

· Vinna með börnum

Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 10. ágúst. Umsækjandi þarf að hafa náð 18. ára aldri.

Umsókn sendist á anton@vestmannaeyjar.is merkt viðkomandi starfi sem sótt er um. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.

Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá forstöðumanni Antoni Erni Björnssyni í síma 481-2964/8688769 eða í tölvupósti anton@vestmannaeyjar.is