Starfsmaður óskast á Víkina leikskóladeild GRV- Hamarsskóla
Starfsmaður í síþrif/ræstingu, 70% starf.
Starfsmaður í ræstingu sinnir alhliða þrifum í skólanum samkvæmt áætlun sem unnin er í samstarfi leikskólastjóra og viðkomandi starfsmanns. Starfshlutfall er 70 %.
Vinnutími er samkvæmt samkomulagi, æskilegur vinnutími er eftir hádegi og mögulega seinnipart.
Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Megin verkefni:
- Þrif á deildum daglega samkvæmt áætlun og starfslýsingu.
- Aðstoðar við matarvagna í kaffitímum.
- Tilfallandi aðstoð í kaffitímum og eldhúsi.
- Tilfallandi aðstoð á deildum og í fataklefa.
- Sækir starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
Menntunar og hæfnikröfur:
- Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum.
- Þarf að geta sýnt frumkvæði í starfi og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi.
- Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
____________________________________________________________________________
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020
Umsóknir skulu berast með tölvupósti á skólastjóra: annaros@grv.is eða aðstoðarleikskólastjóra: gudrun@grv.is
Umsóknarfrestur er til 9. október. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningar.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni og ábyrgð veitir aðstoðarleikskólastjóri Guðrún S. Þorsteinsdóttir gudrun@grv.is