1. apríl 2025

Starfslaun bæjarlistamanns 2025

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2025.

  • Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
  • Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2025.

Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 24.apríl nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhúsið, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veitir Súsanna Georgsdóttir með tölvupósti (susanna@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488 2000.


Jafnlaunavottun Learncove