26. nóvember 2023

Starfsfólk Vestmannaeyjabæjar kvatt

Skapast hefur hefð fyrir því að kveðja starfsfólk sem látið hefur af störfum vegna aldurs með sérstakri viðhöfn í árslok.

Í síðustu viku bauð Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, starfsfólki sem látið hefur af störfum á árinu til samverustundar í Ráðhúsinu. Þar færði Íris þeim lítinn þakklætisvott fyrir framlag þeirra til Vestmannaeyjabæjar á starfsævinni og minntist hvers og eins með nokkrum orðum.

Alls sjö einstaklingar létu af störfum vegna aldurs á þessu ári. Þeir eru Gunnar Rafn Einarsson, Tryggvi Sigurðsson, Sigþór Ingvarsson, Guðrún Sveinsdóttir, Hrefna Guðjónsdóttir, Karen Tryggvadóttir og Haraldur Þorsteinn Gunnarsson. 

Vestmannaeyjabær þakkar öllum ofangreindum samstarfið á síðastliðnum árum og áratugum og óskar þeim gæfuríkrar framtíðar. 

  • IMG_7104
  • IMG_7079
  • IMG_7070
  • IMG_7123
  • IMG_7126
  • IMG_7120
  • IMG_7101
  • IMG_7069
  • IMG_7089
  • IMG_7073
  • IMG_7066
  • IMG_7059
  • IMG_7094
  • IMG_7054
  • IMG_7012
  • IMG_7117
  • IMG_7017