24. nóvember 2021

Starfsemi dagdvalar á Hraunbúðum í aðdraganda jóla

Fólkið hjá okkur tekur þátt í hinum ýmsu verkefnum sem láta gott af sér leiða.

Við í dagdvölinni tókum meðal annars þátt í verkefninu “Jól í skókassa” þar sem við skiluðum frá okkur 26 kössum af ýmsum nytjahlutum fyrir fátæk börn í Úkraínu. Fólkið okkar föndraði jólakortin sem fylgdu hverjum kassa en í kortunum var kveðja á úkraínsku sem Natalia þýddi fyrir okkur. Í kössunum voru einnig handverk frá okkur sem munu eflaust nýtast vel. Öllum þótti verkefnið skemmtilegt og voru glaðir að leggja sitt af mörkum. Undanfarnar vikur höfum við líka fengið verkefni frá henni Þóru í Kubuneh við að þræða bönd utan um poka og setja smellur á margnota dömubindi sem hún sendir svo út til Kubuneh. Hver stúlka fær poka með dömubindum og öðrum hreinlætisvörum.

Starfið hjá okkur er mjög fjölbreytt og við leggjum mikið upp úr því að finna verkefni sem hæfir hverjum og einum.

Starfsfólk dagdvalar

  • Picture2
  • Picture1
  • Picture3
  • Picture4
  • Picture5
  • Picture6
  • Picture7