Staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Kirkjugerði
Laus er til umsóknar staða aðstoðarleikskólastjóra leikskólans Kirkjugerði í Vestmannaeyjum.
Um er að ræða 75-85% stöðu sem skiptist í 30% stjórnun í samráði við leikskólastjóra og 45-55% önnur verkefni s.s. afleysing á deild eða deildarstjórnun. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi við leikskólastjóra
-
Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla í leikskóla.
-
Viðbótarmenntun eða reynsla á sviði stjórnunar.
-
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
-
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
-
Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til 5. júni 2020.Umsóknir berist til leikskólastjóra, á netfangið bjarney@vestmannaeyjar.is „Aðstoðarleikskólastjóri Kirkjugerði“. Ásamt afriti af leyfisbréifi.
Starfslýsingu aðstoðarleikskólastjóra má finna á neðangreindum hlekki KÍ.
https://www.ki.is/kjaramal-og-styrkir/kjarasamningar/felag-stjornenda-leikskola/
Laun eru greidd skv. kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Frekari upplýsingar gefur Bjarney Magnúsdóttir leikskólastjóri Kirkjugerðis í síma 488-2280.
Vestmannaeyjabær hvetur karla jafnt sem konur að sækja um stöðuna.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.