6. febrúar 2023

Skólahald þriðjudaginn 7. febrúar

Ákvörðun um skólahald á morgun, þriðjudag, verður tekin fyrir kl. 7 í fyrramálið.

Veðurstofa hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna veðurs á morgun, þriðjudag. Gert er ráð fyrir að veðrið verði verst milli kl. 6:00 og 10:00 Þá er spáð sunnan 20-28 m/s og mikilli úrkomu. Ákvörðun um skólahald verður tekin fyrir kl. 7:00 í fyrramálið. Ekki er gert ráð fyrir að fella þurfi skólahald niður að fullu en mögulega gæti þurft að seinka upphafi skóladags.

Foreldrar/forráðamenn eru beðnir að fylgjast vel með tilkynningum frá skólunum í fyrramálið.