Óskað er eftir starfsmanni á heimili fyrir fatlað fólk
Kjarninn
Hlutverk Þjónustukjarnans er að veita íbúum stuðning og leiðsögn í öllu er varðar persónulega hagi og heimilisrekstur svo sem þrifnað, þvott, matreiðslu, innkaup og annað samkvæmt starfslýsingu. Einnig skal þeim veittur stuðningur í tómstundastarfi og fá fylgd s.s. til lækna, í klippingu o.s.frv.
Um er að ræða 50% starfshlutfall.
Vinnutími er dagvinna 8-12 alla virka daga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá 1.September eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni:
Starfsmaður sér um almenna umönnun skjólstæðinga vegna líkamlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á. Önnur verkefni eru heimilisstörf s.s. þvottar, þrif, matargerð o.fl.
Hæfniskröfur:
- Reynsla og áhugi á að vinna með fötluðu fólki er kostur.
- Góð samskiptafærni og þjónustulund.
- Frumkvæði og samviskusemi.
__________________________________________________________________________
Upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ósk Þórðardóttir forstöðukona í síma 488 2551/8669480, ingibjorgosk@vestmannaeyjar.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.
Umsækjandi þarf að hafa náð 18. ára aldri.
Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti á forstöðumann. Slóðin á umsóknar hnappinn er: https://www.vestmannaeyjar.is/thatttaka/umsoknir/
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020
Umsóknarfrestur: Til og með 1. ágúst 2024