9. júní 2021

Netnótan - Tónlistarskólar landsins láta ljós sitt skína

Á Íslandi eru tæplega 90 tónlistarskólar starfandi með 15 þúsund nemendur. Flest allir þessir skólar taka þátt í Netnótunni, nýjum tónlistarþáttum, sem unnir eru í samstarfi við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. 

Þættirnir verða sýndir á N4 en þar gefst kostur á að skyggnast inn í starfsemi tónlistarskólanna, grasrót tónlistarsköpunar í landinu.

 

Frá árinu 2010 hefur Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla landsins, verið haldin árlega með pompi og prakt. Árið 2020 átti hátíðin 10 ára afmæli en lítið varð úr hátíðarhöldum vegna Covid. Í Ljósi aðstæðna brugðust tónlistarskólar landsins við með síma og Ipada að vopni og tóku upp eigin tónlistaratriði. Saman eru þessi myndbönd orðin að Netnótunni, þriggja þátta sjónvarpsseríu sem sýnd verður á N4.

Fyrsti þáttur fer í loftið þann 13. júní. Í þáttunum eru myndbönd sem hver þátttökuskóli útbjó heima í héraði púslað saman og sér leikarinn Vilhjálmur Bragason um að kynna atriðin. Eins og sést í Netnótunni þá er starf tónlistarskólanna mjög fjölbreytt, tónlistarnemendur eru á öllum aldri og á öllum stigum tónlistarnámsins.

Myndböndin birtast á vefsíðu KÍ og FB síðu Nótunnar á sama tíma og hver sjónvarpsþáttur er sýndur, auk þess sem þau verða aðgengileg á heimasíðu N4 og í N4 safninu í Sjónvarpi Símans.

Svo gott sem allir tónlistarskólar landsins eru að taka þátt í þessu verkefni og í fyrsta þættinum verður framlag tónlistarskólans í Vestamannaeyjum flutt.

Hér má sjá stiklu úr þættinum

https://www.youtube.com/watch?v=eJ694Y5zmAo

Nánari upplýsingar um Netnótuna veitir Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum í síma 6945462