11. desember 2020

Leikskólarnir lokaðir milli jóla og nýárs

Leikskólar Vestmannaeyjabæjar verða lokaðir milli jóla og nýárs en þó tekið á móti börnum þá daga hafi foreldrar sótt um það sérstaklega.

Það hefur mikið mætt á starfsfólki leikskólanna á árinu sem er nú senn að baki. Takmarkanir vegna COVID-19 hafa sett svip á allt starf og skipulag innan leikskólanna með verulega auknu álagi á starfsfólkið og nemendur. Leikskólarnir í Eyjum hafa á að skipa frábæru starfsfólki sem sýnt hefur mikla fórnfýsi og þrautseigju sem þeim verður seint þakkað að fullu. Það er því kærkomið jólafrí í leikskólunum á næsta leiti en líkt og undanfarin ár verða þeir lokaðir milli jóla og nýárs. Sú breyting er hins vegar á að skipulagsdögum leikskólanna, sem að hluta voru áður voru milli jóla- og nýárs, er nú dreift á skóláárið svo þeir nýtist betur til að skipuleggja faglegt starf sem er mikilvægt á þessu fyrsta skólastigi. Komið verður til móts við foreldra sem þurfa vistun fyrir börn sín milli jóla- og nýárs hafi þeir sótt um það og sjá stjórnendur leikskólanna og afleysingastarfsfólk um starfið umrædda daga.

Það er von mín að starfsfólk leikskólanna, nemendur og foreldrar hafi það sem allra best yfir jólahátíðina og njóti samverunnar með nánustu fjölskyldu.

Fræðslufulltrúi