8. ágúst 2022

Lagning ljósleiðara í þéttbýli Vestmannaeyja

Á næstu dögum mun lagning ljósleiðarans hefjast í austurbænum. Hér eru á ferð starfsmenn Línuborunar sem eru að byrja að leggja blástursrör fyrir nýtt fyrirtæki í eigu Vestmannaeyjabæjar, Eygló ehf.

Eygló ehf. mun halda utan um lagningu ljósleiðara í þéttbýli Vestmannaeyjabæjar. Félagið er alfarið í eigu Vestmannaeyjabæjar og markmiðið með stofnun þess er að tryggja íbúum Vestmannaeyja jafn gott aðgengi að Internetinu og íbúar annarra sveitarfélaga njóta.

Umferð á meðan framkvæmdum stendur

Starfsmenn Línuborunar notast við götufræsara sem fræsir 10-15cm rauf í götur og jarðveg og leggja síðan blástursrör þar ofan í. Með þessari aðferð er hægt að leggja ljósleiðara án þess að loka götum. Bílar geta auðveldlega keyrt yfir raufina. Fólk á hjólum þarf hins vegar að gæta varúðar í kringum framkvæmdirnar þar sem framhjólin eiga það til að snúast þegar þau hitta á raufina og hjólreiðamaður gæti hæglega skollið fram fyrir sig. Þetta á við um öll hjól, þ.m.t. reiðhjól, hlaupahjól og vélhjól. Einnig er hætta á að rigning geti skolað jarvegi úr uppfylltum raufum og við það myndast brún sem getur verið óþægilegt að hjóla á. Línuborun mun leggja alla áherslu á að framkvæmdin muni hafa eins lítil áhrif og möguleiki er á. Raufum verður lokað svo fljótt sem auðið er svo allt jarðrask verði íbúum til minnstu trafala.

Tveir áfangar af sex teknir í sumar

Það er byrjað að koma lögnum inn í hús í vesturbænum og stofnlagnir í götum er að klárast. Næstu skref er að hefja fræsingu á stofnlögnum í austurbænum og halda áfram að koma rörum inn í hús í vesturbænum. Seinni áfanginn sem er í austurbænum liggur frá Heiðarvegi og út Kirkjubæjarbraut.

Sjá plan hér að neðan.