3. maí 2021

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2021

Veistu af áhugaverðum þróunar– og nýbreytniverkefnum í GRV,
leikskólum, Tónlistarskóla eða Frístund sem þú vilt vekja athygli á?
Fræðsluráð Vestmannaeyja auglýsir eftir tilnefningum
til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs 2021.

Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum,
Grunnskóla Vestmannaeyja, Tónlistarskóla Vestmannaeyja og Frístund.
Allir geta tilnefnt verkefni til verðlaunanna; s.s. foreldrar, ömmur og afar, nemendur,
stofnanir, samtök, starfsfólk Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. starfsfólk í leikskólum,
grunnskóla, Tónlistarskóla og Frístund.
Valin verða þrjú verkefni sem fá verðlaun og eru það verkefni sem þykja skara fram
úr og vera öðrum til eftirbreytni.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 25. maí nk.
Með því að smella hér nálgastu eyðublað til að tilnefna:
Tilnefning til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs 2021