27. nóvember 2024

Heimsókn 1. bekkjar í Ráðhúsið

Sú skemmtilega hefð hefur skapast að 1. bekkur GRV hefur teiknað jólamyndir á gjafakort Vestmannaeyjabæjar.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tók á móti 1. bekk í heimsókn í Ráðhúsinu í gær og sagði börnum frá starfseminni hjá Vestmanneyjabæ og hvaða hlutverki bæjarstjórn gegnir. Börnin hlustuðu áhugasöm á og fengu tækifæri til þess að spyrja hana spurninga.

Þetta er samstarfsverkefni Vestmannaeyjabæjar og GRV. Myndirnar eru einstaklega jólalegar og þrjár þeirra voru dregnar út til að prýða jólakort Vestmannaeyjabæjar til starfsmanna jólin 2024. Allar myndirnar sem teiknaðar voru verða til sýnis í Safnahúsinu en sýningin opnar föstudaginn 29. nóvember og verður Safnahúsið með lengri opnun þann dag til kl. 18:00. Þá verður einnig kveikt á jólatrénu á Stakkagerðistúni, nánari dagskrá má finna hér.  

Safnahúsið er opið alla virka daga frá 10-17 og laugardaga frá 12-15. Hvetjum alla til þess að líta við á þessa skemmtilegu sýningu. 

  • 465172289_450715024716953_8118578335577867129_n
  • 465116990_1107977687501046_5057463834914247531_n
  • 467458865_483631468068238_5513568100851226720_n
  • 465683272_910332404567860_5269936517652462474_n
  • 462583646_4034956096738738_8905440672128376020_n
  • 465191254_1287142519190537_344873655137876726_n
  • 462570448_1048284277308297_6338552696237556660_n
  • 462573394_433975082905479_7336731730180108867_n
  • 467466002_937514404464030_5431895389046407346_n
  • 467456244_8724291794321522_4934387988857814943_n
  • 465197944_2030344147393556_4880592935420130953_n
  • 467028695_1292713252157802_1720219094593662773_n

Jafnlaunavottun Learncove