5. ágúst 2020

Frístund opnar 11. ágúst næstkomandi

Þann 11. ágúst næstkomandi opnar frístundaverið á nýjum stað í Hamarsskólanum. 

Frístund er starfrækt eftir hádegi alla virka skóla daga frá 12:30-16:30 fyrir börn í 1-4 bekk. Jafnframt verður boðið upp á heilsdagsvistun á starfsdögum og í vetrarfríi frá 07:45 – 16:30.

Dagana 11-24 ágúst verður heilsdagsvistun á frístund. Þann 11-14 ágúst verður aðeins opið fyrir börn sem eru að fara í fyrsta bekk. 17-24. Ágúst verður opið fyrir öll börn í 1-4.bekk sem eiga gilda umsókn. Umsóknarblað fyrir vistun þessa daga verður send út á foreldra sem eiga barn skráð á frístund í byrjun ágúst.

Megin markmið frístundar er að bjóða upp á innihaldsríkt frístundar- og tómstundastarf í barnvænu og skapandi umhverfi þar sem starfshættir einkennast af frjálsum leik og vali.

Opið er fyrir umsóknir og eru foreldrar beðnir um að sækja um sem allra fyrst, áður en skólarnir byrja. Foreldrar sem eiga börn sem nýttu sér frístund á síðasta skólaári þurfa einnig að skila inn umsókn ef þeir ætla að halda áfram að nýta sér þjónustu Frístundar.

Hægt er að sækja um vistun í gegnum íbúagáttina sem má finna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar

Við hlökkum til að taka á móti ykkur.
Anton Örn Björnsson
anton@vestmannaeyjar.is
s: 4812964