Félagsleg liðveisla hlutastörf – sveigjanlegur vinnutími
Óskum eftir starfsfólki af báðum kynjum í félagslega liðveislu fyrir börn og fullorðna.
Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, s.s. stuðning til að stunda íþróttir/líkamsrækt, fara á menningartengda viðburði og annað félagsstarf.
Um er að ræða hlutastarf, 8-16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi.
Sótt er um atvinnuumsókn í íbúagátt - Mínar síður á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Björg Ólöf Bragadóttir í síma 488-2000 eða bjorg@vestmannaeyjar.is