22. júlí 2020

Félagsleg liðveisla hlutastörf – sveigjanlegur vinnutími

Óskum eftir starfsfólki af báðum kynjum í félagslega liðveislu.

Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, s.s. stuðning til að stunda íþróttir/líkamsrækt, fara á menningartengda viðburði og annað félagsstarf.

Um er að ræða hlutastarf, 8-16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi.

Sótt er um atvinnuumsókn í íbúagátt - Mínar síður á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Lísa Njálsdóttir í síma 488-2620 eða lisa@vestmannaeyjar.is.