Dagdvölin Bjargið
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí nk.
Um er að ræða 85% - 100% stöðu eftir samkomulagi sem unnin er á dagvinnutíma 08:00-16:00 alla virka daga. Starfsmaður þarf að geta hafið störf í ágúst n.k. eða eftir samkomulagi.
Dagdvöl er stuðningsúrræði við þá sem búa í heimahúsum en þurfa að staðaldri eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagdvöl er boðið upp á einstaklingsbunda þjónustu út frá mati á þörfum og byggist á hjálp til sjálfshjálpar. Lagt er upp úr mikilvægi þess að virkja einstaklinga í dagdvöl félagslega og í athöfnum daglegs lífs. Markmiðið er að einstaklingum líði vel og fái þá þjónustu sem þeir þurfa.
Helstu verkefni:
- Aðstoða fólk sem býr í þjónustuíbúðum við athafnir daglegs lífs.
- Virkja félagaslega þáttinn í lífi þjónustuþega og rjúfa félagslega einangrun.
- Veita virka hlustun og athygli á andlega líðan þjónustuþega.
- Sýna gott frumkvæði í starfi og vera opinn, jákvæður einstaklingur.
Hæfniskröfur:
- Áhugi á að vinna með öldruðum.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hreint sakavottorð
- Samviskusemi, frumkvæði og stundvísi
- Góða íslensku kunnáttu
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Lind Geirsdóttir, deildarstjóri dagdvalar í síma 488 2610 / 841 8881 eða í tölvupósti. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá.
Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.