12. júní 2025

Bótakrafan 1,9 milljarðar

Í dag var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands stefna Vestmannaeyjabæjar á hendur Vinnslustöðinni hf. og Hugin ehf., auk VÍS sem er tryggingafélag þeirra, til greiðslu fullra bóta fyrir það tjón sem skip þessara félaga, Huginn VE-55, olli á vatnsleiðslu í eigu bæjarins 17. nóvember 2023.

Bótakrafan hljóðar upp á tæplega 1,9 milljarða króna og er ítarlega rökstudd í stefnunni.

Stefnan byggir m.a. á því að það teljist fullsannað að tjóninu hafi verið valdið af stórfelldu gáleysi og að á því beri ofangreind félög fulla ábyrgð gagnvart íbúum Vestmannaeyja.

Sameiginleg bókun allrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja um þetta í efni í fyrrasumar var svohljóðandi:

‘’Bæjarstjórn styður niðurstöðu bæjarráðs að höfða dómsmál til að heimta fullar bætur fyrir það tjón sem útgerð Vinnslustöðvarinnar olli á vatnslögninni milli lands og Eyja. Fyrir liggur að tjónið nemur a.m.k. 1.500 milljónum króna en útgerðin og tryggingafélag hennar freista þess nú að takmarka bæturnar við um 360 milljónir króna, skv. heimildarákvæði í siglingalögum.

Þrátt fyrir umrætt heimildarákvæði er ekkert sem bannar Vinnslustöðinni að bæta að fullu það tjón sem fyrirtækið hefur valdið bæjarbúum. Það væri viðskiptaleg ákvörðun sem félaginu er fyllilega heimilt að taka. Tjónið er gríðarlegt og nemur a.m.k. 300 þúsund krónum á hvern bæjarbúa. Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum með hækkun skatta og gjalda á meðan tjónvaldurinn sjálfur, Vinnslustöðin, sé eini málsaðilinn sem komi skaðlaus frá því tjóni sem hún olli.

Vinnslustöðin hefur hafnað óskum Vestmannaeyjabæjar um viðræður vegna málsins og því er óumflýjanlegt að gæta hagsmuna bæjarbúa fyrir dómstólum’’.


Jafnlaunavottun Learncove