25. júní 2025

Barnaskóli

Skólaliði - Umsóknarfrestur er til 11. júlí nk.

Um er að ræða 2 - 3 stöður. Starfshlutfall er 70% - 100%, vinnutími er frá kl. 07:45.

Starf skólaliða felst m.a í aðstoð við nemendur í leik- og grunnskóla, gæslu og þrifum á skólahúsnæði. Starfsmaður þarf að geta hafið störf 15. ágúst n.k. eða eftir nánara samkomulagi.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Áhugi og reynsla á að vinna með börnum.
  • Reynsla við ræstingarstörf er kostur.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði.

Helstu verkefni skólaliða:

  • Skólaliði aðstoðar nemendur í leik og starfi og leiðbeinir þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans
  • Hefur umsjón með nemendum í frímínútum úti og inni, og á göngum, aðstoðar nemendur í anda Uppeldis til ábyrgðar og leiðbeinir þeim í samskiptum, reynir að sætta deilur og gætir þess að skólareglur séu virtar.
  • Sinnir gangavörslu á morgnana fram að kennslu.
  • Annast almenna gangavörslu og eftirlit með umgengni nemenda um skólann og meðferð þeirra á munum og búnaði í eigu
  • Aðstoðar nemendur ef með þarf við að ganga frá fatnaði sínum.
  • Sér um daglega ræstingu, heldur húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri samkvæmt vinnuskipulagi skólans.

Umsóknarfrestur er til 11. júlí nk.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Gunnarsson skólastjóri í síma 488 2341 eða í tölvupósti.
Einnig má hafa sambandi við Loga Garðar Fells Ingólfsson umsjónarmann skólahúsnæðis Barnaskóla í síma 891 4362.

Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningar.


Jafnlaunavottun Learncove