31. maí 2024

Auglýsing um kjörstað í Vestmannaeyjum

Kjörstaður í Vestmannaeyjum við forsetakosningar

1. júní 2024 verður í Barnaskólanum, inngangur um norður- og suðurdyr.

Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.

Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 að kveldi sama dags.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:

Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 24. apríl 2024 við Austurveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 24. apríl 2024 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum, er bera bæjarnöfn.

Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

 

Yfirkjörstjórn verður til húsa á kjörstað í Barnaskólanum á kjördegi.

Yfirkjörstjórnin í Vestmannaeyjum.

Jóhann Pétursson

Ólafur Elísson

Þór Ísfeld Vilhjálmsson


Jafnlaunavottun Learncove