22. júlí 2020

Aðstoð í eldhúsi óskast á frístund

Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir í fyrsta skipti að ráða aðstoð í eldhúsi í 37,5 % stöðu. 

Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum frá 13:00-16:00. Einnig eru 30 dagar yfir skólaárið þar sem er opið frá 07:45-16:30

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg

Viðkomandi starfar í eldhúsi við matarskömmtun og þrif og fær jafnaði nákvæma leiðsögn frá næsta yfirmanni.

Helstu verkefni eru
Að undirbúa síðdegishressingar alla virka daga skólaársins.

Að undirbúa morgun hressingar og matarskömmtun í hádegi þegar við á þessa 30 daga sem opið er allan daginn á frístund

Þrif á eldhúsi og í matsal

Vinna með börnum

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun miðast við tímavinnu og eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey.

Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 10. ágúst. Umsækjandi þarf að hafa náð 18. ára aldri.

Umsókn sendist á anton@vestmannaeyjar.is merkt viðkomandi starfi sem sótt er um. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.

Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá forstöðumanni Antoni Erni Björnssyni í síma 481-2964/8688769 eða í tölvupósti anton@vestmannaeyjar.is