Grunnskóli Vestmannaeyja leitar að áhugasömum og öflugum kennara til að sinna m.a. ensku- og dönskukennslu. Um er að ræða 60% starfshlutfall.
Helstu verkefni:
- Kennsla í ensku og dönsku á unglingastigi í samræmi við aðalnámskrá, skólanámskrá og stefnu skólans.
- Skipulagning náms og mats í tungumálakennslu í samstarfi við aðra tungumálakennara.
- Samstarf við starfsfólk, foreldra og stoðþjónustu skólans.
Hæfnikröfur:
- Leyfisbréf sem kennari.
- Reynsla af tungumálakennslu í grunnskóla skilyrði.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
- Hreint sakavottorð er skilyrði.
Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum íbúagáttina. Nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá Einari Gunnarssyni skólastjóra í síma 488-2341 eða einargunn@grv.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí næstkomandi og þarf viðkomandi að geta hafið störf þann 14. ágúst næstkomandi.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.