Tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á málaflokki tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála og hefur bæði menntun og reynslu sem nýtist til þess að skapa framtíðarsýn sem snýr að þessum málum.
Starfið felur í sér umsjón með málaflokki tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála í samráði við sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs og fylgja eftir stefnu sveitarstjórnar varðandi þau mál. Starfsmaður sér um stjórnun, áætlanagerð, rekstur og samhæfingu á starfsemi tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála í samstarfi við yfirmann. Viðkomandi ber ábyrgð á fjármunum. Starfið felur í sér stefnumörkum fyrir starfsemina, þróun, samræmingu og daglega stjórnun á þjónustu sveitarfélagsins á sviði tómstunda, íþrótta og forvarna með áherslu á öfluga þjónustu fyrir íbúa á öllum aldri. Starfsmaður er hluti af stjórnendateymi fjölskyldu- og fræðslusviðs.
Helstu verkefni:
- Helstu verkefni sem heyra undir starfsmann eru m.a. félagsmiðstöð unglinga, sumarúrræði barna, lengd viðvera fyrir fötluð börn og ungmenni, sumarúrræði fyrir fötluð börn og ungmenni, Vinnuskóli Vestmannaeyja, frístundastyrkur, Ungmennaráð, forvarnar- og lýðheilsuverkefni, samstarf við íþróttafélög og félagasamtök og þróun fjölbreyttra tómstundaúrræða fyrir íbúa á öllum aldri.
- Tekur þátt í þverfaglegu starfi innan fjölskyldu- og fræðslusviðs að markmiðum samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna.
Hæfnikröfur:
- Háskólamenntun á sviði uppeldis- og/eða tómstundafræða eða aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af stjórnun og rekstri er kostur.
- Þekking og reynsla að vinna með tómstundastarf.
- Þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga og viðeigandi lögum.
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, frumkvæði og leikni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til stefnumótunar, breytingastjórnunar og árangursstjórnunar.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 (samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
Umsóknarfrestur fyrir starfið er til og með 18. september 2026.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilská með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi um hæfni í starfið. Þeir aðilar sem eru ráðnir á fjölskyldu- og fræðslusvið Vestmannaeyjabæjar þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Nánari upplýsingar veita: Jón Pétursson, sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, jonp@vestmannaeyjar.is.
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.