Fara í efni
Laus störf

Tækjamaður

Umsóknarfrestur: 09.06.2026
Fullt starf

Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf tækjamanns í Þjónustumiðstöðina. Um er að ræða 100% starf sem unnið er frá kl. 7:30-17:00 virka daga. 

Tækjamaður hefur aðsetur í Þjónustumiðstöð Vestmannaeyjabæjar. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyjabæjar. 

Helstu verkefni:

  • Stjórnun stærri tækja og þungavinnuvéla s.s. gröfu, vörubíls og götusóps.

  • Viðhald tækja, vinnuvéla og bíla í samráði við yfirmann

  • Ýmiskonar viðhald s.s. viðhald gatna, gönguleiða og holræsa

  • Ýmiskonar flutningur og önnur þjónusta við stofnanir bæjarins

  • Önnur tilfallandi verkefni sem framkvæmdastjórar bæjarins óska eftir. 

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Meirapróf C

  • Grunnnámskeið vinnuvélaréttinda

  • Starfsreynsla er kostur

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Stundvísi og áreiðanleiki

  • Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og rík þjónustulund

  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á Mínar síður. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfi og ástæðu umsóknar.

Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Jónsson forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar joi@vestmannaeyjar.is 

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.