Við leitum að öflugum og jákvæðum einstaklingum í störf stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Vestmannaeyja - Barnaskóla. Um er að ræða þrjár stöður, hver u.þ.b. 70% starfshlutfall og óskum við eftir að viðkomandi geti hafið störf þann 14. ágúst. Ráðið verður í tvær stöður ótímabundið en ein staðan er til eins árs.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoð og stuðningur við nemendur í námi og starfi innan stoðþjónustu skólans.
- Samvinna með kennurum og öðru starfsfólki að velferð og framförum nemenda.
- Stuðningur við félagslega færni og vellíðan nemenda í skólaumhverfinu.
- Þátttaka í skipulögðu starfi skólans á skólatíma.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Reynsla af að starfa sem stuðningsfulltrúi er mikill kostur.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
- Frumkvæði, þolinmæði og jákvætt viðhorf til fjölbreyttra verkefna.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög um grunnskóla.
Hvers vegna að vinna hjá okkur? Við bjóðum upp á líflegt og skemmtilegt starfsumhverfi þar sem hver dagur er fjölbreyttur. Hjá okkur starfar samhentur hópur sem leggur metnað í að skapa öruggt og hvetjandi umhverfi fyrir alla nemendur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí næst komandi.
Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum íbúagáttina. Nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá Einari Gunnarssyni skólastjóra í síma 488-2341 eða einargunn@grv.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí næstkomandi og þarf viðkomandi að geta hafið störf þann 14. ágúst næstkomandi.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.