Skólaskrifstofa Vestmannaeyja óskar eftir ráðgjafa í 50% starf. Ráðgjafinn starfar í þverfaglegu samstarfi við kennsluráðgjafa, sérkennsluráðgjafa, sálfræðing, deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála, starfsfólk leik- og grunnskóla, velferðarþjónustu og aðra sérfræðinga. Um er að ræða ráðgjafarstarf þar sem áhersla er lögð á farsældarþjónustu sveitarfélagsins, stuðning við nemendur með sérþarfir, fjölskyldur þeirra og ráðgjöf til stofnana á fræðslusviði.
Helstu verkefni:
- Starfar sem tengiliður í farsældarþjónustu sveitarfélagsins og tekur virkan þátt í samþættri þjónustu við börn og fjölskyldur.
- Tekur þátt í fagteymum og þverfaglegu samstarfi á fjölskyldu- og fræðslusviði.
- Veitir ráðgjöf vegna barna í leik- og grunnskóla með ýmiss konar frávik og barna sem eiga í hegðunar-, náms- og/eða félagslegum vanda.
- Er tengiliður nemenda með sérþarfir og situr teymisfundi vegna þeirra í skóla.
- Metur stuðningsþörf í leikskólum í samráði við sérkennsluráðgjafa leikskóla.
- Skipuleggur SIS mat grunnskólabarna í samráði við fræðslufulltrúa og fylgir niðurstöðum eftir.
Menntun og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun (BA/BS/B.Ed.) og reynsla sem nýtist í starfi, s.s. á sviði kennslufræða, sálfræði, uppeldis- og menntunarfræða, þroskaþjálfunar eða félagsráðgjafar.
- Reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi er kostur.
- Þekking og reynsla á sviði uppeldis- og hegðunarmótandi aðferða er kostur.
- Þekking og reynsla af vinnu með börnum með einhverfu, ADHD, hegðunar-, náms- og félagslegan vanda.
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn með rafrænum hætti í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni í starfið og ástæðu umsóknar. Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni og uppruna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Hreint sakavottorð er skilyrði.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 31. mars n.k.
Nánari upplýsingar veitir Helga Sigrún Í. Þórsdóttir, deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála í síma 488-2000 eða helgasigrun@vestmannaeyjar.is