Fara í efni
Laus störf

Staða starfsmanns í eldhús í Kirkjugerði

Leikskólinn Kirkjugerði óskar eftir að ráða starfsmann í eldhús frá kl.11:00-16:00 alla daga.
Umsóknarfrestur: 14.09.2026
Hlutastarf

Kirkjugerði er 7 deilda leikskóli sem vinnur eftir hugmyndafræði Hugsmíðahyggjunnar. Í skólanum dvelja að jafnaði 124 börn á aldrinum 1-5 ára. Einkunnarorð skólans eru: Gleði, félagsfærni og jákvæður agi. Eldhúsið er móttökueldhús.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að skammta nemendum skólans mat.
  • Vaska upp og ganga frá í eldhúsi eftir hádegismat og nónhressingu.
  • Þvær allan þvott sem til fellur og gengur frá honum.
  • Sér um að koma upplýsingum til skólastjóra hvað vantar af vörum.
  • Þrífa eldhús í lok dags og fara út með rusl.
  • Heldur kaffistofu starfsfólks hreinni

Hæfniskröfur:

  • Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgður og áhugasamur. Vera jákvæður og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026.

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á íbúagátt  Vestmannaeyjabæjar. 

Nánari upplýsingar veitir Eyja Bryngeirsdóttir skólastjóri Kirkjugerðis í síma 488-2280 eða eyja@vestmannaeyjar.is  

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.