Fara í efni
Laus störf

Slökkviliðsstjóri Vestmannaeyja

Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf slökkviliðsstjóra. Um er að ræða 100% starf sem unnið er á dagvinnutíma og er 36 klst vinnuvika auk æfinga  og  bakvakta að hluta.
Umsóknarfrestur: 28.10.2026
Fullt starf

Slökkviliðsstjóri hefur aðsetur í slökkviliðsstöð Vestmannaeyjabæjar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar. 

Helstu verkefni:

  • Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliðsins

  • Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliðsins

  • Eldvarnareftirlit og stjórnun aðgerða

  • Umsjón með öllum tækjum og viðhald á búnaði slökkviliðsins 

  • Umsjón með fjárreiðum, stefnumótun og áætlanagerð í samráði við sviðsstjóra

  • Samskipti við hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Umsækjandi skal hafa löggildingu sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. nr. 75/2000  og starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum

  • Hafa lokið námi sem eldvarnareftirlitsmaður sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna

  • Stjórnunarreynsla og þekking á rekstri

  • Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg

  • Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði í starfi

  • Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Leiðtogafærni

  • Vilji til þess að tileinka sér nýjungar í starfi

  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á Mínar síður. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfi, prófskírteini sem við á og ástæðu umsóknar.

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Brynjar Ólafsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs brynjar@vestmannaeyjar.is  

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.