Hlutverk stuðningsþjónustu:
Er að aðstoða þjónustuþega sem þurfa aðstæðna sinna vegna á stuðningi að halda við athafnir daglegs lífs og eða til að rjúfa félagslega einangrun.
Helstu verkefni:
Að veita stuðning við persónulega umhirðu og önnur verkefni sem starfsmanni er falið af yfirmanni og falla undir starflýsingu starfsmanns í stuðningsþjónustu.
Menntunarkröfur:
Sjúkraliðanám og starfsleyfi útgefið af landlækni.
Hæfniskröfur:
Hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð
Hafa áhuga á að vinna með fólki.
Vera stundvís og samviskusamur
Eiga gott með mannleg samskipti
Umsóknarfrestur er til og með 1 ágúst 2026 og þarf viðkomandi að geta hafið störf 15. ágúst 2026.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.
Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri stuðningsþjónustu í síma 488-2800 eða í gegnum netfangið kolla@vestmannaeyjar.is
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands