Safnvörður með hönnunarumsjón í Safnahúsi Vestmannaeyja
Helstu verkefni eru
Miðlun á efni í vörslu Safnahúss.
Myndvinnsla og margmiðlun.
Hönnun og uppsetning sýninga.
Sýningastjórn.
Leiðsögn um söfnin.
Móttaka gesta.
Safnkennsla.
Umsjón með munavörslu, skráningu, úrvinnslu og kynningu á safnmunum.
Samstarf um menningarviðburði á vegum Vestmannaeyjabæjar.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er mikill kostur.
Reynsla og þekking á sviði safnamála er kostur.
Þekking á margmiðlunar- og hönnunarforritum kostur s.s Adobe
Reynsla af skipulagi viðburða og verkkunnátta er kostur.
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt getu til að setja fram á skýran hátt mál í ræðu og riti.
Aðrir þættir sem nýst geta í starfi.
Safnahús Vestmannaeyja samanstendur af sjö söfnum eða safndeildum. Lögð er mikil áhersla á einingu Safnahússins og hluti af starfsskyldum er því að vinna þvert á önnur söfn hússins eftir því sem þörf er á hverju sinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahúss í síma 488 2040, 892 9286 eða með tölvupósti, kari@vestmannaeyjar.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn ásamt menntunar-og starfsferilsskrá með rafrænum hætti í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í maí 2026.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Umsóknarfrestur um starfið er til 24. apríl 2026.