Fjölskyldu- og fræðslusvið auglýsir lausa umsókn í 50% stöðu frístundaleiðbeinanda í lengda viðveru 10-18 ára barna og ungmenna með fatlanir skólaárið 2026-2027.
- Vinnutími er eftir hádegi virka daga, eftir að skóla lýkur.
- Þegar vetrarfrí er í skólanum, á skipulagsdögum og á foreldraviðtalsdögum er lengri viðvera þá daga.
Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku. Starfið felst í að veita börnum og ungmennum með stuðningsþörf innihaldsríkt tómstunda- og frístundastarf þar sem félagsleg þátttaka, leikur og heilbrigði er í forgrunni. Nemendum er veitt einstaklingsmiðuð þjónusta í öruggu umhverfi. Lengd viðvera barna með fatlanir er staðsett í Félagsmiðstöðinni við Strandveg 50.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi æskileg
Reynsla af starfi með fötluðum er kostur
Áhugi og ánægja af starfi með börnum og ungmennum
Dugnaður, jákvæðni, sveigjanleiki og ábyrgðarkennd
Frumkvæði í starfi, faglegur metnaður og sköpunargleði
Góð færni í íslensku æskileg
Viðkomandi þarf að hafa náð 19 ára aldri og hafa hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundastarfi og styðja við börn og ungmenni með fatlanir við ýmis þroskandi verkefni.
Samráð og samvinna við börn og ungmenni, forráðamenn, starfsfólk og aðra sem koma að starfi frístundaþjónustunnar.
Gefa einstaklingunum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
Sá sem verður ráðin/nn í starfið þarf að geta hafið störf 24. ágúst.
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.
Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.
Umsóknir skulu berast með rafrænumhætti í gegnum íbúagáttina. Nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá Eyrúnu, eyrunharalds@vestmannaeyjar.is og/eða Helgu Sigrúnu, helgasigrun@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2000.
Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst næstkomandi.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.