Fara í efni
Laus störf

Laus störf við Hamarsskóla veturinn 2026-2027

Umsóknarfrestur: 18.06.2026
Hlutastarf

Hamarsskóli

Auglýst er eftir íþróttakennara við Grunnskóla Vestmannaeyja. Íþróttakennari sinnir íþróttakennslu í Barna- og Hamarsskóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki seinna en 15. ágúst 2026. 
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Íþróttakennari,  80% starfshlutfall

Menntunar -og hæfnikröfur:

•    Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu.
•    Viðkomandi þarf að vera:  Metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. 
•    Reynsla af íþróttakennslu er kostur.
•    Áhugi á heilsu, hreyfingu og íþróttum er mikilvægt. 
•    Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Helstu verkefni:

•    Íþróttakennsla í 1.-10.bekk. 
•    Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
•    Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið Aðalnámskrár og stefnu skólans og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni.
•    Beitir fjölbreyttum kennsluaðferðum til að tryggja árangur nemenda
•    Tekur þátt í samstarfi við aðra kennara.
•    Situr starfsmannafundi, kennarafundi, deildarfundi, fagfundi og aðra þá fundi sem skólastjórn ætlast til að faggreinakennari taki þátt í.
•    Leysir úr vandamálum sem upp kunna að koma hjá nemendum.


Heimilisfræðikennari,  65-75% starfshlutfall

Menntunar -og hæfnikröfur:

•    Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu.
•    Viðkomandi þarf að vera:  Metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. 
•    Áhugi á heilsu, næringu og hollu mataræði er kostur. 
•    Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.


Helstu verkefni:

•    Heimilisfræðikennsla í 1.-4.bekk.. 
•    Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
•    Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið Aðalnámskrár og stefnu skólans og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni.
•    Beitir fjölbreyttum kennsluaðferðum til að tryggja árangur nemenda
•    Tekur þátt í samstarfi við aðra kennara.
•    Situr starfsmannafundi, kennarafundi, deildarfundi, fagfundi og aðra þá fundi sem skólastjórn ætlast til að faggreinakennari taki þátt í.
•    Leysir úr vandamálum sem upp kunna að koma hjá nemendum.


Frístund

Frístundarverið er staðsett í Hamarsskóla og er starfrækt eftir hádegi alla virka skóladaga frá því að skóla lýkur og til 16:30. Einnig er opið á Frístund flesta daga þegar skólinn er lokaður frá 07:45-16:30.

Frístundaverið óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda í 42% stöðu fyrir veturinn 2026-2027. Um er að ræða fjórar stöður frístundaleiðbeinanda. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum. Frá 13:00-16:00/16:30. 
Á sumrin vinnur starfsmaður í sumarfjörinu frá 09:00-16:00 á daginn og hækkar starfshlutfall eftir því. 
Starfsmenn þurfa að geta hafið störf ekki seinna en 15.ágúst.  Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda. Umsækjandur þurfa að hafa náð 18. ára aldri.
 

Frístundaleiðbeinandi

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Helstu verkefni
 
•    Vinna með börnum 
•    Almenn umönnun barna 
•    Fylgd á íþróttaæfingar 
•    Hjálpar til að móta og framvæma dagskrá 
•    Aðstoð við síðdegishressingu 
•    Vinna með börnum 
•    Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Víkin 5 ára deild

Deildarstjóri

Staða deildarstjóra er laus til umsóknar.  Starfshlutfall eftir samkomulagi 80%-90%. Ráðning er frá 1. ágúst 2026 til 1.ágúst 2027

Menntunar- og hæfnikröfur:

•    Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun skilyrði. 
•    Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 
•    Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi. 
•    Reynsla af deildarstjórn í leikskóla æskileg. 
•    Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Helstu verkefni

•    Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni 
•    Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar. 
•    Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra. 
•    Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni. 
•    Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum. 
•    Er í virkri samvinnu við foreldra.
•    Önnur verkefni tengd: stjórnun, uppeldi og menntun og foreldrasamvinnu samkvæmt starfslýsingu. 
•    Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.


Umsóknarfrestur fyrir öll störfin er til 18. júní nk.

Umsókn sendist merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.  Umsóknir skulu almennt berast með með tölvupósti á skólastjóra annaros@grv.is.
Upplýsingar um störfin má fá hjá Önnu Rós Hallgrímsdóttur skólastjóra. Sigurleif Kristmannsdóttur umsjónarkonu frístundar sigurleif@grv.is og Guðrúnu S. Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra Víkurinnar gudrun@grv.is

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.    
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.