Fara í efni
Laus störf

Heimaey vinnu- og hæfingarstöð auglýsir eftir starfsmanni á hæfingastöð.

Umsóknarfrestur: 01.08.2026
Hlutastarf

Helsta markmið starfsins er að hvetja, efla og auka/viðhalda getu starfsmanna/þjónustunotenda í uppbyggilegu umhverfi Heimaeyjar vinnu- og hæfingarstöðvar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfsmaður á hæfingarstöð er þátttakandi í því að skapa aðstöðu fyrir alla starfsmenn til margháttaðra starfa og verkefna í Heimaey. 
  • Veita starfsmönnum/þjónustunotendur leiðsögn í verklegum þáttum og félagslegum samskiptum.
  • Starfsmaður sér um að taka við, ganga frá og senda pantanir.
  • Starfsmaður sér um útborganir á skilagjöldum í Endurvinnslunni, panta sekki og sér um samskipti við Samskip í samráði við forstöðumann.   
  • Starfsmaður sér um skil vegna vörupantana sem þarf að skila til bókara á skrifstofu Vestmannaeyjabæjar 
  • Starfsmaður aðstoðar við skipulag á lager og sér um að halda birgðarskrá yfir framleiðsluvöru.
  • Starfsmaður er þátttakandi í því að skapa fötluðu starfsfólki aðstöðu til margháttaðra framleiðslustarfa og leitast við að auka færni þess til að takast á við sem flest störf innan vinnustaðarins.
  • Veita starfsmönnum í vinnusal og í Endurvinnslunni leiðsögn í verklegum þáttum og félagslegum samskiptum.
  • Hlutverk leiðbeinenda er að vera starfsmanni í verndaðri vinnu til stuðnings í starfsþjálfun, veita honum leiðsögn í verklegum þáttum og félagslegum samskiptum.                                                                                                                                                                                         
  • Leiðbeinandi fylgist með því að gæðakröfum sé framfylgt bæði í Endurvinnslunni og í vinnusal. Hann fylgist einnig með því að rétt vinnubrögð séu höfð frammi við þau störf sem unnin eru. 
  • Sinnir ýmsum útréttingum og öðrum þeim störfum sem honum er falið af yfirmanni.
  • Þjálfa skyn- og hreyfifærni starfsmanna/þjónustunotenda 
  • Daglegur frágangur og þrif

 

Hæfnikröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með fötluðum er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki
  • Hreint sakavottorð

 

Frekari upplýsingar um starfið

Starfið er laust frá 31. ágúst 2026, kostur ef viðkomandi getur hafið störf fyrr. Umsóknarfrestur er til 01.08.2026

Laun og kjör skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélags viðkomandi. 

Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum íbúagáttina.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Halldórsdóttir forstöðumaður Heimaeyjar vinnu og hæfingarstöðvar í tölvupósti thoranna@vestmannaeyjar.is eða í síma 4882620 

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.