Fara í efni
Laus störf

Hegðunarráðgjafi hjá skólaþjónustu Vestmannaeyjar

Umsóknarfrestur: 10.06.2026
Fullt starf

Vestmannaeyjabær óskar eftir að ráða hegðunarráðgjafa hjá skólaþjónustu Vestmannaeyja í 100% starf. Um afleysingarstarf er að ræða í eitt ár.

Hegðunarráðgjafi starfar í þverfaglegu samstarfi við kennsluráðgjafa, sérkennsluráðgjafa, sálfræðing, deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála, umsjónarþroskaþjálfa, starfsfólk leik- og grunnskóla, velferðarþjónustu og aðra sérfræðinga. Hegðunarráðgjafi veitir faglega ráðgjöf og stuðning í málefnum sem tengjast hegðun, líðan og félagsfærni barna og/eða ungmenna. Markmið starfsins er að efla jákvæða hegðun, bæta samskipti og stuðla að öruggu og styðjandi umhverfi.

 

Helstu verkefni:

  • Veita ráðgjöf til starfsfólks, stjórnenda og foreldra vegna hegðunar- og samskiptavanda
  • Greina hegðunaráskoranir og taka þátt í gerð einstaklings- og stuðningsáætlana
  • Styðja við innleiðingu jákvæðrar hegðunarstjórnunar
  • Vinna með börnum/ungmennum í einstaklings- eða hópastarfi eftir þörfum
  • Taka þátt í teymisvinnu með öðrum sérfræðingum
  • Fræða starfsfólk og foreldra um hegðun, líðan og forvarnir
  • Fylgja eftir málum og meta árangur íhlutunar
  • Halda skráningu og vinna samkvæmt lögum um persónuvernd
  • Taka þátt í stefnumótun og þróunarstarfi stofnunar

     

Menntun og hæfnikröfur:

  • Háskólapróf í sálfræði, atferlisfræði, uppeldisfræði eða sambærilegum greinum.
  • Meistarapróf í hagnýtri atferlisgreiningu er kostur.
  • Þekking og reynsla af því að vinna með BeanFee.
  • Þekking og reynsla að nota ABLLS-R.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð enskukunnátta og færni í öðrum tungumálum kostur.

     

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi SÍS og viðkomandi stéttarfélags.

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.

Með umsókn skal fylgja kynningarbréf og menntunar-og starfsferilsskrá.

Hreint sakavottorð er skilyrði.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2026.

Nánari upplýsingar veitir Helga Sigrún Þórsdóttir, deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála helgasigrun@vestmannaeyjar.is