Fara í efni
Laus störf

Garðyrkjustjóri í þjónustumiðstöðina

Umsóknarfrestur: 27.04.2026
Fullt starf

Leitað er að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf garðyrkjustjóra sveitarfélagsins. Starfið felur í sér að móta ásýnd bæjarins, viðhalda grænum svæðum og stýra fjölbreyttum árstíðabundnum verkefnum utandyra sem innandyra. 

Starfið er á umhverfis- og framkvæmdasviði með aðsetur í þjónustumiðstöðinni.  

Helstu verkefni og ábyrgð:  

  • Umsjón með uppbyggingu og viðhaldi opinna svæða innan bæjarlandsins. 

  • Umsjón með sumarstörfum og vinnuskóla. 

  • Umsjón og skipulag með gróðursetningu vor, sumar og haustblóma. 

  • Gerð og uppfærsla umhirðuáætlana og eftirlit með umhirðuverkefnum. 

  • Ráðgjöf til forstöðumanna stofnana bæjarins varðandi almenna umhirðu lóða, skipulag, gróður og annað sem að hans sérþekkingu lýtur. 

  • Verkefni í þjónustumiðstöð utan annatíma garðyrkju eru verklegar framkvæmdir, aðgerðir vegna veðurs, almenn störf við viðhald, endurnýjun og umhirðu opinna svæða. 

 Hæfniskröfur: 

  • Garðyrkju- eða skrúðgarðyrkjumenntun. 

  • Reynsla af sambærilegu starfi. 

  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og þjónustumiðað viðhorf. 

  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni. 

  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur. 

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á Mínar síður. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfi og ástæðu umsóknar. 

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2026. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjar Ólafsson framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs brynjar@vestmannaeyjar.is

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.