Helstu verkefni:
- Verkefnabundin stjórnun launadeildar.
- Umsjón með launavinnslu.
- Umsjón með skráningu launagagna og skjölunar.
- Eftirlit með framkvæmd kjarasamninga í samvinnu við mannauðsstjóra.
- Umsjón með áætlanagerð og launagreiningum.
- Umsjón með launa- og tímaskráningarkerfi.
- Aðstoð, eftirfylgni og ráðgjöf varðandi launa- og kjaramál.
Hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði eða hagfræði
- Þekking og reynsla af tímaskráningarkerfum (t.d. Vinnustund) er kostur.
- Þekking og reynsla af launa- og mannuðskerfi (t.d. H3) er kostur.
- Mikil og haldgóð tölvukunnátta og gott tölvulæsi er nauðsynlegt.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
- Áhugi fyrir að kynna sér nýjungar og lausnir í síbreytilegu vinnuumhverfi.
- Góð samskiptahæfni.
Nánari upplýsingar um starfið:
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á Mínar síður. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfi og ástæðu umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí nk. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Drífa Gunnarsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs drifagunn@vestmannaeyjar.is
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.