Staða deildarstjóra er laus til umsóknar. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs.
Starfshlutfall eftir samkomulagi 80%-90%.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun skilyrði.
- Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi.
- Reynsla af deildarstjórn í leikskóla æskileg.
- Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Helstu verkefni:
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
- Er í virkri samvinnu við foreldra.
- Önnur verkefni tengd: stjórnun, uppeldi og menntun og foreldrasamvinnu samkvæmt starfslýsingu.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Umsóknarfrestur er til og með 10. september. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri í gegnum netfangið annaros@grv.is
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.